sma af heimilisfólkinu

góðar saman
Þá er ég búinn að fara í morgungönguna og er eldhress og kát. Elvari gekk bara vel í prófinu í gær og enginn vandræði ,nú er hann í stærfæðiprófinu og vona ég að það gangi eins vel enda er hann góður í stærfræði.Það var saumaklúbbur í gær og mikið var hlegið og auðvitað miklar kræsingar, það var ákveðið að fara í jarðböðinn við Mývatn og jólahlaðborð miklar athafnakonur þessar kellur.Sigrún er með verkstæði í bílskúrnum hjá sér og vinnur þar með leirförur sem eru alveg æðislega flottar nú er hún búinn að gera svo æðislega lampa mér langaði alveg rosalega að kaupa af henni en verð að bíða aðeins, svo eru þau með svo fallega veggplatta með áletrunum´og sumir í þrívídd.Verkstæðið heitir Gallerí Sigrún og er í Urðargili 26 akureyri, vandað og ekki og dýrt.'Eg er svo löt núna enda svaf ég illa í nótt elskulegu hamstrarnir voru ekki mjög hljóðlátir voru  í hjólinu og það ískraði svo mikið , ég fór niður og náði í matarolíu og setti á bansett hjólið og guð hvað var hljótt á eftir.Haldiði að ég ætti ekki að losa mig við eitthvað af þessu!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!.Ég fór út í Húsasmiðju(ekki segja Bryndísi hún vill bara BIKO) og keypti mér þennan dýrindis verkfæra kassa undir litina mín og pensla þetta er allt annað líf nú get ég bara opnað skúffu og þarna eru litirnir í röð og reglu, alveg dásamlegt.Fór að sækja strákana á æfingu í gær sem er nú kannski ekki frásögu færandi nema þegar við komum heim var dóttir mín þessi elska og vinkonur hennar búnar að drullumalla inn í eldhúsi einhverja brúna leðju og sykur út um allt eldhús, ég þreyf það og hélt að þar með væri það búið en nei uppi í herbergi fann ég súrmjólkur fernu og glös og skrifborðið hennar útbíað í einhverji brúnni drullu . Frúin var ekki alveg hress með þetta ,en sú litla sagði bara eins og venjulega fyrirgefðu ég geri þetta ekki aftur(þangað til næst) hhihihihihih.

daginn og veginn

duglegur og stór
Svalur Borgaði inn á ferðinna í gær þvílík sæla, ég er víst að fara til Köben  í frí.Krakkarnir vita ekki enþá að við erum að fara nógur verður nú æsingurinn samt, þegar þau vita að við förum bara tvö og þau verða hjá afa og ömmu.Byrjaði í gær að fara í göngutúra ,svona í leiðinni að ég labbaði með krökkunum í skólan,fór síðan í 30min göngu,þolið er bara nokkuð gott, en ég skil ekki af hverju sama hvað ég æfi að þessi bruna tilfinning í fótunum skuli aldrei minnka.væri betra að spikið myndi brenna frekar en að verkja svona í fæturna. Hamsturófétið slapp aftur í nótt Bolli sá hann skjótast undir sjónvarpið og kallaði á mig (sem var sofandi ) til að hjálpa sér að ná þessu kvikindi aftur, nú fara þeir í gæludýrabúðinna þetta er of mikið eða þannig.Elvar Kári er í samræmdumprófum í dag og á morgunn, hann er nú bara í 4 bekk, þetta er farið að ganga út í öfgar þessi samræmdu próf, hann var svolítið stressaður yfir þessu og sagðist ekki geta neitt, en í gær var hann svo fljótur að gera verkefnin sín án hjálpar að þetta ætti ekki að vera neitt mál fyrir hann, en þetta er aðeins út af venjunni og það hentar honum ekki(er með ódæmigerða einhverfu) en var orðin sáttur þegar ég skildi við hann í skólanum.Myndin sem ég er að mála er langt komin þarf aðeins að fínisera hana,svo tek ég mynd af henni og set á bloggið mitt.Það hefur snjóað í fjöllinn en rignir hérna í bænum, hressandi veður og gaman að fara út að ganga . Í hádeginu ætla ég svo að fara í Graviti á Bjargi,um að gera að púla nóg.Svo eru ferðirnar með krakkana á æfingar bara 2staðir í dag annars eru þetta 3til 4 staðir fram og til baka og frá 15.30 til 18 alla daga svo fer ég í leikfimi kr 19.30.en þetta er bara fínnt allir ánægðir og  hressir.Í kvöld er svo saumaklúbbur hjá Sigrúni og annað kvöld út að borða með Lions og svo gætum við farið á laugardagskvöld líka út en það er aðeins og mikið fyrir mig svo ég ætla að sleppa laugardagskvöldinu og vera bara heima með grislingunum.Ragnar er orðinn svo stór en mér fynnst svo stutt síðan hann var bara lítill ponsa og bauð öllum sem við hittum góðann daginn með þessu líka bjarta brosi.

Tölvan læknaði sjálfan sig

Nú er tölvan mín komin í lag og aldrei verið betri,í gær fór internetið alveg af og ekki í fyrsta skipti, en í dag small allt í lag veit ekki hvað gerðist.Einhver sent henni hugskeyti eða af því að ég hótaði að henda tölvufj... út um gluggan hlhlhlhlhlha.Hérna er annaars allt gott að frétta . Fór og sótti um vegabréfið í gær og það kom í pósti í dag, snögg þjónusta það.Nú er ekkert að vanbúnaði og fara að borga miðana ef karlinn má einhverntíman vera að því.Í gær tíndist einn af hömstrunum og upphófst hin ægilegarta leit  og allt kom fyrir ekki, en í nótt þegar ég fór á wc var þá ekki greyjið ´þar skíthrætt og svangt og nú hófst hamagangurinn við að handsama hamstrurinn ,slapp hvað eftir annað en að lokum sigraði nú frúin og gripurinn settur á sinn stað uff.

vakrarlok.

Nú er  ég að klára síðustu vaktina þessa vikuna, það er frekar rólegt og farþegarnir sem komnir eru frekar syfjaðir synist mér.Það er svo gott að vinna þegar enginn er komin svo mikill friður, e n samt er alveg rosalega gaman þegar allir eru mættir ,þetta er svo léttgeggjað lið að það er alltaf gaman að koma í vinnuna.Eftir að ég byrjaðir að blogga hefur hraðinn hjá mér aukist við að skrifa ,svo alltaf er eitthvað gott sem kermur af þessari villeysu .Vikan hefur liðið mjög hratt og margt að gerast. Brynís litla er nú held ég með alla þrjósku ættarinnar, í gær fórum við í grautinn eins og venjulega, mín vildi taka vinkonu sína með, en ég vildi það ekki var búinn að ´fá nóg því þær gistu allar heima,þetta líkaði ekki prinsessunni og grét og gargaði alla leiðina heim í Bjarg frá Akureyri, og hætti ekki fyrr en eftir góða stund þegar inn kom amma var alveg eyðilögð yfir þessari frekju en um    síðir stitti upp og litlan borðaði grautinn sinn og margar sneiðar af lifrapylsu.Og eftir það var allt gott. Hvernig getur öll þessi þrjóska lent í svona litlum búk.Ragnar stærir sig af     því að nú geti hann horft beint í augun á mér    án þess að líta upp til mín alveg að ná kellinguni í hæð .jæja nóg um það nú er ekki meira að frétta héðan l

hello tölvuvandamál hin eilífu

Jæja alltaf að byrja á veðrinu eins og góðum íslendingi sæmir. Hér er hið magnaðasta haustveður og litirnir alveg æðislegir,Horfi oft bara út um gluggan og stari á þessa liti .Við fengum úlpur í vinnunni í dag og auðvitað mátuðum við þær,ég og Áslaug þetta var small stærð af karlmannaúlpum en samt vorum við eins og litlir bangsar í appelsínugulum úlpum,sást rétt í nefið á okkur,verðum flottar að spóka okkur um á flugvellinum,svona sjálflýsandi og bangsalegar.Hvað haldiði að ég gerði í dag ,pantaði far til koben í aðventuferð,held að Bolli sé ekki búinn að ná sér enþá , verðum á nýju hóteli sem heitir Kaupenhavn Iceland. er alveg að springa af spenningi.Tölvan mín er alltaf í einhverju veseni, er samt búin að hringja í síman og þeir uppfærðu randerin en enn er eitthvað að svo nú vantar mig tölvusnilling til að athuga hvað sé að ,vill aldrei koma með leitarsíðurnar og er lengi lengi lengi að vinna og koma með það sem ég bið um. það er bara hending að eg komst inn í bloggið, Bolli komst inn á bankan gegnum favorites  og ég beið í 5 mín eftir að komast inn á mb.is.Hjaaaalp hvað á ég að gera henda tölvunni út um gluggan kaupa nýja eða hvað, nú hlær einhver,vill helst ekki hringja í Ármann er alltaf að pirra hann á þessari tölvuskjóðu.Lýsi hér eftir snillingi sem veit hvað ég á að gera ...............Jæja nóg af kvarti og kveini það meiga aðrir gera það.Kristjana frænka er 25 ára í dag ,en hún býr í Ástralíu þessi elska.Mér finnst svo stutt síðan hún var með ljósu krullurnar sínar og þessi líka litlu gleraugu að stríða frænku sinni og skríkja  af spenningi.Svo er Inga Dogg og fjölskylda í heimsókn á klakanum líka nýbúin að eiga afmæli.mikið um að vera hjá stórri fjölskyldu. bless skrifa næst þegar tölvan mín leyfir ..

enginn snjór

Nú er snjófölin mín farin og komin 9 stiga hiti og fínheit,krakkarnir ekkert of ánægðir með það en við hin erum bara sátt við það.Nú er ég að spá í að fara aðventuferð til Köben 7 des svolítið spennandi,en þegar ég sagði Bolla það lá við að hann fengi hjartaáfall,því hann er búin að vera reyna að fá mig með sér til Danmerkur í 3 ár, en núna langar mig til að fara búin að sjá fínnt hótel víð Nyhöfn . En mig vantar barnapíu í 4 daga,bíður sig einhver fram hihihihih.Löt í vinnunni í dag enda rólegur dagur í fluginu .Ætla í ræktina í hádeginu,en er samt að   drepast í maganum eftir æingarnar í gær.oooo.

Fyrsta snjófölin komin

'I gær snjóaði aðeins hérna og ég á sumardekkjunum,vonandi bráðnar þessi snjóföl fljótt,annars flott veður  hjá okkur.Fór í ræktina í gær,þetta var þræla púl og er ég að drepast í hnéinu núna ,skánar vonandi fljótlega því ég má ekki vera að þessu veseni,Þarf að komast aftur í kvöld.Og auðvita þurfa blessuð börnin að vera um víðan völl í kvöld l´lika vídeokvöld og bekkjarkvöld ,held að það þurfi að klóna mig í fjórar aðrar kellur.Var að vinna í gær sem öryggisvörður, það er svo gaman af   fólki þegar það er að koma frá útlöndum, á flugvöllin hér það heldur að það geti gengið inn og út eins og um innanlendsflug sé að ræða og geti farið út og sett bílin í gang áður en það tekur töskurnar og á eftir að fara í tollinn.Hvernig er þetta gert í Keflavík,getur fólk farið inn og út án þess að fara gegnum tollskoðun,og æsingurinn í liðinu að fara í litlu sætu fríhöfnina okkar og kvarta svo síðan hvað allt gengur hægt þegar 50-110 mans ætla í 30 fermetra herbergi á sama tíma ekki er eins og það sé að missa af neinu,en auðvitað e r fólkið þreytt eftir flugið,en bara 10 mín heim eftir tollin ætti að vera ánægt með það og við starfsfólkið brosandi út af eyrum og öll að vilja gerð til að aðstoða.Svo er nú það .Annars allt gott að frétta af okkur líður vel og allir hressir,eigum von á þeim gömlu í söngferðalag með eldri borgurum á næstunni,krakkarnir eru að farast úr spenningi.kveðja heiða norðan heiða.

aðeins pirruð á ríg milli landshluta og fl.

Þriðjudagsþokan komin yfir Akureyri,og smá suddi,en hvað með það góða skapið er enþá hérna,og  hamstrarnir líka!!!!!!!!!!!!!!!Já aðeins orðin þreytt á þessum smádýrum.,því krakkarnir tíma ekki að láta einn einasta fara.,svo við  Bolli erum að hugsa um að flytja út og eftirláta hamstrafjölskyldunni húsið hihi.

Bryndísi leist ekki á það.Svo maður minnist á vöruúrvalið hérna á Akureyri, þá finnst manni stundum að fólki sé visvitandi beint til borgarinnar eftir sumum hlutum, stelpunni vantaði t.d. bara bol með áföstu pilsi í dansin nei  það er ein sportbúð hérna sem e r með smávegis úrval af  þessu   en þá bara á þær minnstu og alltaf svarið það kemur í næstu viku og þá bara smávegis, þetta er nú það stór bær að úrvalið ætti að vera betra. Og að fá strákaföt fyrir jólin hvað er það þurfa þeir nú að fá jólaföt? Nóg til handa stelpunum,Og einu sinni vantaði mér pollagalla að hausti til nei það er búið að pakka þeim niður og hætt að panta fram á vor ,en það rignir líka á veturna og snjórinn er blautur, en ekki var hægt í neinni búð það haustið að   fá pollagalla , en viti menn nú er farið að selja gallana allt árið hvað kom til ,svo þetta getur breyst. Svo kaupmenn akureyrar það er hægt að  breytast. 'Eg nenni ekki að   sækja allt til r.víkur, þó að það sé gaman að koma þangað öðru hverju .Þá vil  ég fá góða þjónustu hérna líka. Ekki viljiði að ö ll landsbyggðin flytji suður það verður einhver sem vælir.Svo góðir landar hættum þessum hroka við erum ekki svo mörg að við höfum efni á því að   vera svona sundurð  þið viljið h afa það gott fyrir sunnan  líka við hérna úti á landi.(svo er ég nú líka sunnlendingur)OG er hneygsluð á öllum ríg á milli landshluta, hverfa og allt það.


ég er enþá lifandi

fyrirgefið elskurnar mínar   en enn einu sinni kemst ég ekki inn á netið heima h já mér eitthvað bilað en bara nettengingin ,kemst inn á póstin og allt það .Er að verða svolítið þreytt á  þessu. En héðan er allt gott að frétta, var i sláturgerð  um helgina og tókum við helmingin og meira þegar er búið að slátra lömbunum okkar.Í gær fórum við svo þrjú að gróðursetja með    Lionsfélaginu hans Bolla ,einhverjar hríslur fyrir ofan Illugastaði í ausandi rigningu.Alveg voðalega gaman.'I dag á Inga Dögg afmæli og vona ég að    eigi góðan dag kíki kannski aðeins á síðuna hennar.Það er gott að sjá að  þú  saknir mín Kristjana,svo átt þú afmæli bráðum en færð ekki kveðju fyrr en þá hi hi hihihihihih.

jæja má ekki vera að því að skrifa meira í bili,verð víst að gera eitthvað  meira í dag ......


lítið spjall

Jæja nú ættu spánarfararnir að vera komnir heim   brún og hressileg, en auðvitað er svo mikið að gera hjá þeim að þau hafa ekki hringt í mig ennGráta . Nú ringir og rignir ætti að fyllast lónið fræga,og lífsblómið líka eða þannig. Héðan er allt gott að frétta allir hressir og kátir,líka hamstramergðin mín.Enn halda þeir í mentaskólanum að senda gömlu koninni sms ,um herranótt og allskonar skemmtanir ég verð nú bara að fara að skrá mig í skólan svo ég geti tekið þátt í öllu þessu, og nú er farið að hringja í mig líka, mín ekkert of ánægð og því síður fólkið sem hringir og fær alltaf einhverja kerlingu í stað  stráklings sem er  ranglega skráður á Mitt númer ,að  þetta lið´sé ekki farið að fatta þetta . Já maður getur nú     orðið þreyttur eða hvað...... Nú er flug í nótt svo ég er að vinna og Bolli sem ætlaði að bjóða mér á ballGráta með sixtís .seinna takk .Ekkert meira að  frétta verð að fara að koma mér í leikfimina.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband