Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

já nú er bleik brugðið

Já þið trúðuð því ekki að ég gæti móðgað fólk ,en ég hélt að ég væri kominn í fullorðna manna tölu, og gæti sagt það sem ég vildi án þess að menn tækju það illa upp. En ég varð reið og þakkaði mannninum fyri mætingu og áhuga á fundi sem hann hafði verið boðaður á .Honum líkaði ekki hrokin í orðum mínum,en þetta var bara ekki fyrsti fundurinn sem hann ætlaði að koma á en sást ekki. FootinMouthEn hvað um það ég erfi þetta ekki við manninn .Enda ekki ástæða til að velta sér upp úr slíkri vitleysu.Það gerir bara óþroskað fólk eða er það ekki, ég hélt það æi hættu nú kona.

Annars er allt gott hérna Pétur hinn danski er í heimsókn og dagskráinn er svo stíf hjá honum að það hálfa væri nóg heimsækja alla gömlu vinina og matarboð hér og þar, annars var dóttir hans að verða stúdent og reyndar tengdarsonur , sem var tilefni heimsóknar hans til Íslands,en ég er hrædd um ef matarboðin verða svona mörg eins og til stendur verðum við að nota vörulyftara til að koma honum í flug á sunnudaginn.Og svo gætu dönsku flugmennirnir neitað að taka á loft vegna ofhleðslu og beina flugið til Köben gæti endað með millilendingu í Keflavík.Þeir eru annsi hræddir þessir dönsku flugmenn að fljúga hér til Akureyrar vegna allra stóru fjallana og svo er stundum gola svo þeir sjá að fánarnir hérna bærast í golunni og vilja minnka eldsneytið og helst að skilja allan farangurinn eftir því kannski er flugbrautinn ekki nógu löng .Ja hvað um það vonandi kemst Pétur aftur til danaveldis.

Nú er draugurinn að reyna að hafa áhrif á skrif mín  en tekst ekki,ég byrja bara aftur.

Við fórum fram i eyjafjarðarsveit í dag á handverksýningu í Laugarborg með tengdó,og voru eldri borgarar eða sveitungar að sýna handverk sitt, og svo var líka þetta dýrðlega hlaðborð  að eyfirskum sveita sið .Ekki þótti Ragga það leiðinlegt enda matmaður.Elvar Kári var ekki eins hrifinn en fékk sér mjólk og margar kleinur prinsessan var eitthvað pirruð og vildi ekkert,en svo æstist daman svolítið sem endaði í höfuðverkja kasti.En síðan var haldið á Glerártorg því við höfðum frétt að það væri kominn ný dótabúð Toy are us og auðvitað vildi liðið skoða herlegheitin,en viti menn það var búið að fresta opnunni til   30 maí ,eins og sagt er það sást tár á hvarmi, en hrist síðan af sér.

Bryndís var orðin eitthvað lasin þegar við komum heim grét og var illt í höfðinu svo hún fór upp í rúm kl 18 og hefur sofið síðan kl 12 ætli ég ætti ekki að koma mér í bólið líka ekki má demba of miklu út í einuSleeping

ps. þið sem fenguð broskalla frá mér í kvöld afsakið þessa auka karla sem fylgdu með kunni ekki að ná þeim burt.DCP_3085 

 

 


það er nú svo

já nú hefur mín verið löt að blogga enda nóg að gera,við að sofa vinna og aðra vitleysu,móðga fólk ja hérna .  Elvar Kári vildi ekki fara suður á sundmótið og ekki vill hann heldur fara á Akranes 6 júní þó að ég fari nú með vill bara vera heima .Nú sit ég hérna við borðstofuborðið og þori ekki að hreyfa mig var nefnilega að taka til og held að allt hrinji ef ég hreyfi mig. æi nú er karlinn komin heim skrifa meira seinna  
















Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband