Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006

brosandi blómarós Þetta fallega bros á hún Bryndís blómarós hún var að keppa í fótbolta á sunnudaginn þór gegn völsungum og hennar lið þór vann, hún var bara búin að fara á eina æfingu og fékk að keppa.Var í fyrstu alveg æst í að fara að æfa fótboltan en svo fannst henni full mikil harka í þessu og þjálfarinn æpa of mikið, er lítið fyrir svona hörku líltl hjarta. Beðið eftir að fara í skólan þessi ungi maður er voðalega þreyttur á morgnana og þarf að hvíla sig aftur þegar hann er búin að borða morgunmatin.Raggi að fara í skólan og þarna er Ragnar á leið í skólan aldrei friður fyrir þessari myndavél. Annars er ekki mikið að frétta af okkur allt gengur sinn vana gang.

smá prufa

Nú er bara vika þangað til við förum til köben,er ekki enn farin að taka þessu .Unnur hringdi í gær og talaði bara lengi, Guðrún hafði lent inni á sjúkrahúsi í aðgerð.annars var allt gott að frétta. Er að prófa hvort bloggið virkar Ragnar kemur ekki sínu bloggi í gegn virkar ekki ,svo nú er að reyna vita hvort þetta fer í gegn

Heyrði í unni í gær!!!!!!!

Heyrði aðeins í henni systur minni í gær var bara nokkuð hress, Gunnar var að rífast við tölvuna að vanda.Er að hugsa um að láta mömmu og pabba taka Unni með sér heim þegar þau koma aftur frá norge ekkert vit að láta konuna vera þarna ,vantar einhvern til að rífast við eða þannig ekki hægt að gera þetta í gegnum síma. Raggi var í beltaprófi í gær   í tae won do (vona að ég skrifi þetta rétt) og það var stoltur drengur sem kom heim með blá beltið,þetta er sjálfsvarnaríþrótt og það er enginn hætta að  þessi drengur noti það öðruvísi, enda heldur í heiðri reglur íþróttarinnar.Og auðvitað fannst Bryndísi honum of mikið hælt en ég sagði henni að þegar ég færi á danssýninguna hennar 17 des. þá fengi hún nú líka mikið hrós. þá var allt í lagi. Góð vinkona mín vill taka að sér liðveislu fyrir Elvar Kára og ætlum við að athuga þetta í næstu viku. :Þeim kemur mjög vel saman og segist hún eiginlega vera ástfangin að þessum litla manni ,enda enginn furða hann bræðir mann þessi engill.Nú náði kvefpúkin mér loksins svo ætli maður snýti sér bara ekki duglega í fríinu .Og Jórunn bloggið hennar Bryndísar er hérna á síðunni minni undir Bloggarar og síðan krakkarblogga og þá er leikurinn auðveldur eftir það.Wink

Blogg og h ugrenningar um einhverfu og þá sem vinna við fatlaða

Já frænku finnst ættin okkar taka pláss á blogginu, eftir að ég byrjaði að blogga hefur hingingum ættmenna fækkað því nú lesa þau bara bloggið og ef eitthvað sem þarfnast útskýringa hringir mamma og fær greina betri svör. Svo kjaftaði ég víst að þau ætluðu kannski að heimsækja systu í norge .það kom þá að   því að ég kjaftaði frá einhverju hihhjhjhjj.. fæ bara hiksta.Nú er að koma tími á að skrifa fleirri greinar um einhverfuna en ég er búin að setja svo marga tengla inn að kannski þarf ég þess ekki en það er bara svo gaman að grúska í þessu,en verð að fara  að fá nýrri greinar því það eru svo margir sem eru að glíma við þennan vanda og ekki allir sem koma sér til að afla sér upplýsinga . Ég var svo heppin að vera búin að vinna með fötluðum í nokkur ár og þekkti sum einkenni þegar fór að bera á þessu hjá Elvari,og fékk góða hjálp enda á ég góða fjölskyldu.En margir vina minna héldu að þetta væri bara vitleysa í okkur  strákurinn var bara fyrirferðamikil og sumir sögðu að þetta eldist af honum, en þetta er því miður ævilöng fötlun sem eldist ekki af drengnum mínum , en við getum hjálpað honum að komast betur af í lífinu með góðri þjálfun og vera vakandi fyrir öllu sem getur hjálpapð. Sem betur fer hefur hann frábæran kennara og stuðningsaðila sem fylgir honum í skólanum,kennarinn hans hefur farið á námskeið um þessa fötlun og gert myndrænastundatöflu í skólanum fyrir hann ,en hún segir að hinir krakkarnir noti hana eins mikið ef ekki meira, því Elvar hefur mjög gott sjónmynni. og margt sem kennarinn hefur komið með í bekkin til að hjálpa honum nýtist mjög vel fyrir hina líka . svo að þið sjáið að það er margt fólk sem vinnur óeigingjarna vinnu og   oft sjállboða vinnu fyrir fatlaða ,því einhvernvegin fer það svo að fólk sem vinnur fyrir fatlaða er mjög óeigingjarnt og vinnur að miklum dugnaði og hef ég notið þess eins og aðrir.Bara ef ríkistjórnir allra tíma hefður raunverulegan skilning á þessu ,það verður ekki alltaf til fólk sem vinnur af hugsjón í þessum málum hvað     gera menn þá ................................

sofandi dagur

Búin að vera þreyttur dagur,hjálpaði krökkunum að læra og gekk frá . Sofnaði síðan og hélt að væri komin laugardagur þegar ég vaknaði.meiri vitleysan.Það er búið að verð frábært veður vonandi heldst það eitthvað.Um daginn var ég á vakt á vellinum og þar sem maður er bara á gangi og fullur salur af fólki og öll borð full af bollum og flöskum ,tók ég aðeins til  og fór með á teríuna ,ég fékk nú ekki góðar mótökur svo þetta læt ég vera í framtíðini þegar slegið er á hjálparhönd er hún ekki veitt aftur, já ég er sár en , en það jafnar sig, er að verða langrækin á gamalsaldri einu sinni hefði ég bara hlegið og haldið áfram að hjálpa en nú fynst mér þetta leiðinlegt .

Ég vildi að eg hefði eins margt að tala um eins og hún Jórunn frænka,hún er hafsjór af fróðleik og alltaf eitthvað ´nýtt að frétta hjá henni,svo er gott að fá fréttir af ættingjunum hjá henni hihi.GrinÞað er svo margt sem mér langar að skrifa en einhvernvegin vantar mig orðinn,en ef ég stend á haus smá stund hlítur þetta að koma .Shocking


bb og ekb

Hérna ætla elvar og bryndís að setja sitt efni inn

smá fréttir.

Er búin að vera að vinna síðan kl.4 í nótt fékk að vísu að fara heim frá 7 til 14 en vann síðan til 17. 4 millilandaflug .krakkarnir fóru með pabba sínum í sveitina til ömmu.Mamma hringdi í morgun og sagði mér heilmargar fréttir allt góðar , og öllum gengur vel. Unnur er víst að fara í aðgerðina 11.des daginn eftir að ég kem heim frá danaveldi.Gömlu eru að hugsa um að fara til hennar um jólin eftir að þau eru búin að vera hérna hjá okkur .fjör hjá þeim enda veitir þeim ekki af að fara í rólegt umhverfi eftir að vera hérna .Við saumaklúbburinn fórum í smá derkur í gær heitapottin og síðan út að borða. þar sem þjónnin helti óvart vatni yfir eina af okkur, (gott því það var 15 stiga frost úti ) en í sárabætur fengum við allar ábætin frían fyrir utan hvað við skemmtum blessuðum drengnum og hlóum mikið.

sól í hjarta og líka úti

Það er svo fallegt veður hérna sjór og sólksyn og það ríkur af sjóum í frostinu er um 15 stig úti núna og snjórin svo fallega hvítur vona að það haldist aðeins þó það sé gaman þegar það ríkur upp í éljunum ef maður getur verið heima og ekki að puðast í vinnuna eða skutla krakkalokkunum . Raggi ætlaði að blogga hérna á mínu bloggi en ákvað að stofna sitt eigið sem er raggi289blog.is og verður það eitthvað fyrir yngra fólkið hann hafði mikin áhuga á þessu og verður gaman að fyljgast með því.Nú þarf ég að rjúka  í leikfimi svo í graut og slátur til tengdó gamlir siðir í hávegum hafðir. Og nú eru bara 3 vikur þangað til ég fer til Kaupmannahafnar og bara með karlinn með mér en krakkarnir njóta þess að vera hjá afa og ömmu ,held að það sé meira spennandi en að hanga með okkur hu.

 


Við gerum okkar besta

 

Jæja nú ætla ég að gera aðra tilraun að skrifa þurrkaði allt út í morgun,kannski átti það bara ekki að birtast.En nú er hætt að snjóa í bili komið logn en ískalt.Var að vinna í allan gær þó átti ég að vera í fríi á flugvellinum. Það var skemmtilegur hópur sem var að fara til Danmerkur í gærmorgun. Og þó að vélin bilaði í keflavík tóku allir þessu með ró,og vélin lenti á vellinum var klappað og hrópað húrra. og hver segið að við akureyringar séum flugdólgar viljum bara jafn góða þjónustu og annarstaðar.Mér sárnaði þegar þessi maður frá Express talaði um að það væri slæm þjónusta á akureyrarvelli,vegna þess að ekki veit ég betur að starfsfólkið leggi sig allt fram um að redda því sem þau geta, og ekki er nú einn starfsmaður frá Express að vinna þarna allt starfsmenn Icelandair og vinna meira segja margir á aukavöktum svo allt gangi nú sem best og yfirmenn vallarins taka lítið frí ,og vinna jafnt í öryggisgæslu sem öðru og duglegri yfirmenn hef ég ekki unnið fyrir .Og ætlunin hjá Express var aldrei að fljúga lengur en til 3 des. þess vegna skil ég ekki þessi læti í blöðunum og lenging brautarinnar hefur nú staðið til lengur en þetta flug hefur verið.Finns bara vest að þeir sem ekki eiga það skilið fá leiðindin.

En annars er allt gott að frétta af okkur hérna Raggi ætlað að byrja að blogga og á eftir ætlum við að stofna hans blogg. það verður gaman að vita hvað hann hefur að segja.


nokkrir tenglar um einhverfu og snjór

Nú er ég búin að setja inn nokkra tengla tengda einhverfu og skyldum þroskaröskunum og vona ég að þið getið nýtt ykkur það .Þetta eru slóðir sem ég hef fundið í leit minni að svörum um fötlun Elvars Kára í gengnum tíðina og eru margir fróðlegir molar þarna. Eg var að dásama veðrið áðan það var svo bjart og sólin skein , en núna er byrjað að snjóa aftur ætli það verði ekki bara að grafa okkur upp í vor með þessu áframhaldi,eða ég kaupi mér snjóbíl hihihihihihihih.Nei þetta er ósköp indælt ,leiðist bara að vera alltaf að moka bílin upp W00t Nú eiga krakkarnir að vera komin heim eitthvað seinni því snjórin er annsi þungur fyrir svona litla fætur og letin við að labba heim ,svona er maður lætur veslings börnin labba heim þegar aðeins snjóar þau eru nú ekki ánægð með það finnst algjör óþarfi að þurfa að hreifa sig svona mikið .

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband