Alveg á ég dásamlegan pabba.

Nú erum við bara 3 heima dóttirinn hefur ekki sést í dag Elvar Kári á sundmóti í Reykjavík ,svo frumburðurinn er bara einn hjá mömmu og pabba og leiðist það ekki .'Eg bað pabba að sækja Elvar á flugvöllinn ,þessi dýrðlingur sótti kauða og eitthvað af sundliðinu.Og auðvitað horfði hann á drenginn keppa,Elvar vann til verðlauna og fréttamaður tók viðtal við hann og fleirri ,ef einhver á ekki eftir að segja fréttir þegar hann kemur úf höfuðborginni.Það var eins gott að ég kláraði að mála herbergið hans áður en hann kemur heim.Á bara eftir að útvega honum skrifborð,fórum að skoða en fundum ekkert  pabbi hans vill finna stórt borð svo kauði geti nú dundað sér  að leira .Það kannski rekur á fjörur okkar síðar ..

Skólinn byrjar á miðvikudag,æi er svolítið kvíðin búin að hafa það allt of gott um jólinn.framhald síðar þegar Elvar Kári er búinn að segja mér fréttirnar.

Unnur myndirnar eru í vinnslu. Og takk pabbi þú átt engann þinn líkann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Til hamingju með Elvar, Heiða mín og já, hann pabbi þinn er engum líkur enda uppáhaldsfrændi minn.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.1.2009 kl. 18:10

2 identicon

Já afi er meistari!

en vá ELVAR!!! YAY til hamingju!!

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 11:56

3 Smámynd: Unnur Ósk

Drífa sá Elvar í sjónvarpinu og öskraði á mig en ég varð aðeins of sein að sjá frænda minn. Til hamingju Elvar Kári.

Unnur Ósk , 8.1.2009 kl. 23:38

4 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

Til hamingju með Elvar þetta er frábært

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 10.1.2009 kl. 13:05

5 Smámynd: Karl Tómasson

Já, kæra Laugheiður. Þú átt einstaklega ljúfan og góðann pabba. Hann er líka svo skemmtilegur og gefandi.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 11.1.2009 kl. 00:17

6 Smámynd: Unnur Guðrún

Þetta er nú líka besti pabbinn í heiminum. Og til hamingju með strákinn. Kannski það hafi verið þetta sem mig dreymdi um.

  

Unnur Guðrún , 11.1.2009 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband