Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Heilræði.

Temdu þér rósemi í dagsins önn og mundu friðinn, sem getur ríkt í þögninni. Reyndu að lynda við aðra, án þess að láta þinn hlut. Segðu sannleikann af hógværð en festu. Hlustaðu á aðra þótt þeir kunni að hafa lítið til brunns að bera. þeir hafa sína sögu að segja.

Forðastu háværa og freka. þeir eru æ til ama.Vertu ekki að bera þig saman við aðra. þú verður engu bættari, sumir eru ofjarlar þínir, aðrir mega sín minna. Gakktuótrauður að hverju verki, láttu ekki sitja við orðin tóm.

Leggðu alúð við starf þitt, þótt þér finnist það léttvægt.Vinnan er kjölfesta í völtum heimi. Vertu varfærinn í viðskiptum, því margir eru viðsjálir. Lokaðu samt ekki augunum fyrir dyggðinni þar sem hana er að finna. Margir stefna að háleitu marki og alls staðar er verið að drýja dáð.

Vertu sannur, Reyndu ekki að sýnast. Ræktaðu ástina, því þrátt fyrir þyrrking og kylda er hún fjölær eins og grasið. Virtu ráð öldungsins, sem víkur fyrir æskunni.Stældu hugann svo hann verði þér vörn í hretviðrum lífsins. Auktu þér ekki áhyggjur að ástæðulausu. Margur óttinn stafar af þreytu og einmaaannakennd. Agaðu sjálfan þig, en ætlaðu þér af. Þú ert þessa heims barn, rétt eins og trén og stjörnunar, og´þú átt þinn rétt. Þú færð þín tækifæri þótt þú gerir þér það ekki alltaf ljóst.

Haltu frið við Guð - hvernig svo sem hú skynjar hann-hver sem iðja þín er og væntingar í erli lífsinns: vertu sáttur við sjálfan þig.

Lífið er þess virði að lifa því þrátt fyrir erfiðleika. fals og vonbrigði. Vertu varkár . Leitaðu hamingjunnar.

Fannst í gömlu St. Pálskirkjunni í Baltimore í Bandaríkjunum.ársett 1692


Bæn indjánanna

Mér var gefin þessi bæn á blaði fyrir nokkrum árum og fannst hún falleg og gaman að hafa hana hér með.

'Ó , mikli andi. hvers rödd ég heyri í vindinum

-heyr mig!

Sem eitt þinna mörgu barna

kem ég til þín.

Ég er smár og veikburða,

ég þarfnast afls þíns og visku.

 Megi ég ganga í fegurð.

lát augu mín æ fá gleymd hin

rauðu og purpuralitu sólsetur.

Láttu hendur mínar virða þau verk,

 sem þú hefur skapað,

og eyru mín hlusta eftir þinni rödd.

 Gerðu mig vitran, svo ég fái skynjað

 þau fræði sem þú hefur fólgið í

hverjum þumlungi jarðarinnar.

 Gerðu mig sterkan , ekki til þess

 að miklast yfir bræðurm mínum,

heldur til þess að verða þess megnugur

 að berjast við mesta óvin minn,

sjálfan mig.

Gerðu mig hæfan til þess að ganga

fram fyrir þig með opnum huga

 þannig að þegar lífið þverr

líkt og dagsólin dvín, komi andi minn til þín

laus við sköm.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband