laugardagsrabb.

Fór í ræktina í morgun mjög skemmtilegur tími og engar pásur  sem mér finnst stundum of margar, svo átti að vera viktun en viti menn viktin og sú sem átti að sjá um þetta var ekki á staðnum þetta er í annað sinn sem þetta kemur fyrir og voru margar frekar óánægðar, svo vorum við látin hlaupa aðeins út þegar við vorum alveg að springa og fengum aðeins súrefni og góðar teigur á eftir. Eftir leikfimi var farið í mjólkurgrautin í sveitina og ég gerði hreint hjá tengdó. Það var alveg æðislegt veður í sveitinni og reyndar hérna líka að manni langaði helst í göngu upp í fjall, en lét það ekki eftir sér , karlin er ennþá að grafa eftir vatni , það gekk víst heldur erfiðlega að koma tækjunum upp á fjall í gær enda blautt og allt í drullu svo festu þeir traktorin og annað í þeim dúr enda búnaðurinn mjög þungur sem þeir voru með, svo það var frekar þreyttur og skítugur maður sem skreiddist heim seint í gærkvöldi.Ég fór aðeins í Munkaþverárkirkjugarð áðan það var svo fallegt veður og lognið þar, teindapabbi er jarðaður þar , ég hef aldrei tekið sérstaklega eftir því hvað er mikil kyrrð og ró í kirkjugörðum eða allavega var gott að koma þangað ,enda saknar maður karlsins svolítið ,var alltaf með fyndin svör á reiðum höndum eða kastaði fram góðri vísu.Gerði mér gott að aðeins líta til hans . Tendamamma á afmæli á mánudaginn,hún er alltaf á einhverju flakki eða þannig ,nýtur þess að sjá og heyra í fólki ,gott á meðan hún getur.Bryndís er orðin hress , en á að fara í fleirri blóðprufur,.'Eg fékk smá viðbrögð við sms æðinu sem ég er að fá yfir mig nú var hringt í mig og komst þá viðkomandi að því að hann hafði skráð símanúmer vitlaust hjá sér , en ekki hætta smsin samt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Vá hvað þú ert búin að skrifa mikið. Ég sem kíki á hverjum dagi hafði ekki séð allt þetta. Gaman af framhaldinu um litla kallinn.Gaman að frétta af ykkur og eina greinina á ég eftir að melta. Bless í bili Jórunn

Jórunn Sigurbergsdóttir , 23.9.2006 kl. 21:26

2 identicon

hæ hæ!

sorry er búnað vera soldið upptekin og ekki kíkt á þig! vá þú hefur skrifað geðveikt mikið!! frábært!

takk fyrir emailið! hjálpaði mikið!

Sakna ykkar líka alveg rosalega, sakna líka sveitarinnar! Frábært með krakkana að tala ensku! Michael verður ánægður með það því honum finst ervitt að læra þessa íslensku!

allavega!

stórt knús til allra!

Kristjana

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 23.9.2006 kl. 23:30

3 identicon

Gaman að lesa bloggið þitt, Heiða mín.
Takk fyrir síðast og gangi þér áfram vel :)
Hóffa

Hóffa (IP-tala skráð) 25.9.2006 kl. 07:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband