Leir og svæðanudd

Fórum á fyrsta þorrablótið í gærkvöldi og var þetta bara notarleg kvöldstund þó erfiðlega gengi að koma karli í rúmið  eftir blótið .

Fór í leirgerð til Sigrúnar vinkonu sem er með lítið stúdíó í skúrnum hjá sér , hún bauð okkur í saumaklúbbnum á smá námskeið  og er ég alveg forfallin fyrir þessu þetta að malla í leir og móta er alveg æðislegt, nú á bara eftir að brenna leirin og svo getum við farið að mála hann.

Bryndís fékk nýtt prinsessurúm og hefur bara sofið í sínu rúmi síðan og nú þarf ég ekki stiga til að breiða ofan á hana.

Svæðanuddið gengur alveg rosalega vel hjá Elvari og ætlum við að halda áfram því að árangurinn er alveg frábær , en síðasti tími var víst svolítið erfiður fyrir hann tilfinniningalega en honum leið mjög vel eftir á.Gat aðeins losað um sínar tilfinningar.

Næstu helgi fer Ragnar á Bikarmót á Selfossi og vona ég að færðinn verði til friðs og hálfum mánuði seinna fer Bryndís á sundmót í Hafnarfirði og í millitíðini fer Ragnar á Reykjaskóla í 5 daga nóg að gera hjá þeim en Elvar verður bara í dekri hjá mömmu og pabba og Mjásu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 óska Brynku babe til lukku með sundmótið og vonandi skemmtir Raggi rúsína sér vel í Reykjaskóla!

xx

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 01:07

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að lesa færsluna en hef ekkert að segja.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.1.2008 kl. 12:36

3 Smámynd: Unnur Guðrún

Alltaf allt á fullu krúsidúllurnar mínar

Unnur Guðrún , 27.1.2008 kl. 17:57

4 Smámynd: Kristín Magnúsdóttir

Elskan mín, veðrið á Selfossi um næstu helgi verður æði. ÉG verð á svæðinu .   Það er greinilega nóg að gera á þínum bæ.

Kristín Magnúsdóttir, 27.1.2008 kl. 20:40

5 Smámynd: Laugheiður Gunnarsdóttir

já nokkuð erillsamt

Laugheiður Gunnarsdóttir, 27.1.2008 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband