Sveigur í dekri

Héðan er allt gott að frétta af snjóalandinu,Bolli og Jónína komu með flugi í kvöld,því það var ófært yfir heiðarnar.En gott að fá þau heim. Sveigur var hjá okkur um helgina og það var dekrað við blessaðan karlinn farið með hann oft út að pissa  og svo fórum við í gönguferð í gær en hann var orðinn svo haltur að við stittum gönguferðina, hann var settur í sturtu og knúsaður í bak og fyrirDCP_0015.Svo svaf hann við rúmið hjá mér í nótt svo ég stingi hann nú ekki af.Svo þegar Bolli og Jónína komu hresstist hann til muna og passaði að gamla konan færi nú ekki á undan sér í sveitina,og nú var hann ekki stirður þegar hann fór upp í bílinn og lagðist makindalega í sætið.Ég þarf að vinna í fyrramálið því sú sem vinnur á móti mér er veðurtept fyrir sunnan.og ég sem ætliað að gera svo mikið uffffff.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnur Guðrún

Sveigur hefur nú alltaf verið duglegur að sníkja dekur. Alveg frá því hann var hvolpur þá gekk hann á milli bæja í nágrenni við Bjarg og sníkti bæði klapp og matarbita.

Unnur Guðrún , 19.3.2007 kl. 07:08

2 Smámynd: Laugheiður Gunnarsdóttir

Já Sveigur er sniðugur að fá það sem hann vill og núna sakna ég þess að hann er farinn í sveitina aftur þetta var svo notarlegt að hafa þetta flikki á stofugólfinu hjá sér og betri en nokkur ljónastytta út í garði.

Laugheiður Gunnarsdóttir, 19.3.2007 kl. 10:48

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Sveigur veit hverjir eru vinir hans. Bið að heilsa þér og þínum á Akureyri.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.3.2007 kl. 16:40

4 identicon

knús til Sveigs og ykkar!!!

xxx

Kristjana Engliráð Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 19.3.2007 kl. 21:42

5 Smámynd: Laugheiður Gunnarsdóttir

og nú sakna ég hans ógurlega

Laugheiður Gunnarsdóttir, 20.3.2007 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband