leiðinlegur vírus gerði tölvuna mína óvirka hjálpppppppppppppppppp.
8.4.2007 | 12:48
alltaf jafn seinheppin haldið að ég hafi ekki fengið troju vírus í nýju tölvuna mína og nú er netið á henni óstarfhæft og ég veit ekki hvernig ég á að ná þessu út er einhver sem veit eitthvað um þessa leiðinlegu vírusa .annars er allt gott að frétta Þórunn og hennar eru hjá okkur um páskana og hann Sveigur kom í snyrtingu og dekur og var hjá okkur í dag .Svo förum við að Bjargi í páskakaffi.Pabbi átti afmæli á föstudag,reyndar er ég búin að hringja í hann en til hamingju pabbi minn með daginn og vonandi áttu marga afmælisdaga ánæjulega og skemmtilega með okkur skemmtilegu börnunum þínum hihihihihihi.Annars er gott veður og urmull af fólki í bænum ekki hægt að fara í búðir fyrir fólki sem þvælist fyrir og langar raðir að búðarkössunum,en þetta lífgar upp á bæinn og gaman af þessu nema þegar ég þarf að bíða lengi í búðinni .en ekki þessa sem ég er að skrifa á núna hún slapp.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Veit ekki Heiða mín. Fékk einusinn í gömlu tölvuna mína. Þá fékk ég eitthvað á netinu sem hreynsaði hana en man ekki hvar . Þetta er svo langt síðan. Og svo kemst þú líklega ekki á netið á þinni tölvu. Leiðinlegt.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 8.4.2007 kl. 13:33
Ekki veit ég neitt um hvernig þú átt að losna við þennan vírus en er ekki vírusvarnarforrit í henne sem getur skannað hana og hent út þessum óþverra.
Unnur Guðrún , 10.4.2007 kl. 07:44
jú það er vírusvörn en þetta slapp einhvernvegin inn.
Laugheiður Gunnarsdóttir, 10.4.2007 kl. 14:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.