Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
Algjör leti
3.9.2008 | 22:58
Nú er letin alveg að hellast yfir mig sef framefti á morgnana dútla eftir hádegi hver endar þetta,reyndar búin að taka til í nokkrum skápum,furðulegt hvað kryddin skemmast eða verða bara of gömul hjá mér hihi ætli ég sé ekki bara svona löt að nota þau í matargerðina hihihiahahhaahahhalalalalahhhh. Já alveg að flippa . Var að útbúa blog handa henni dísu minni nú ætlar stúlkan að vera dugleg að skrifa í vetur ,kannski tekur við af múttu sinni.
Fékk vírus í tölvuna og lengi vel gat ég ekki hreinsað hann út en viti menn á endanum tókst þetta hjá mér ,og er heldur en ekki montin .
Heldur snubbóttar fréttir hérna en samt betra en ekkert.
loksins að byrja í skólanum
2.9.2008 | 18:01
Hérna er allt í rólegheitum,loksins manaði ég mig upp í að hringja í skólan,og lét þau hafa netfang sem virkaði.Og þá kom orðsendingin til mín stíluð á 14 ágúst. upps en á mánudaginn byrja ég kl 10 ,er með nedurgang af stressi .Það er svolítið skrítið að setjast á skólabekk eftir 21 ár skrítin tilfinning.En hugga mig við það að það eru fleirri sem eru í eldri kanntinum þarna.Bryndís og Elvar byrjuðu á æfingum í gær,sú litla fannst þetta nú ekki spennandi að vera alltaf fyrst og hafa litla keppni svo hún ætlar að prufa að fara í Akureyrarlaugina þar eru þau sem eru komin aðeins lengra,og henntar mér ágætleg því þá eru æfingarnar kl 17 og ég búinn í skólanum.Raggi er orðinn stærri en pabbi sinn og er heldur en ekki montinn, mér peðinu er bara klappað á kollin.