bara að halda ykkur við efnið
29.12.2008 | 21:00
Lítið um að vera hjá okkur fórum í sund á meðan Elvar Kári var á sundæfingu,og bara syntum þónokkuð ,svo fóru allir heim ánægðir og þreyttir og borðuðu heimalagaða pitsu.
Elvar er að fara á sundmót aftur á sunnudaginn´nýársmót fatlaðra ,ekkert lát á þessu hjá drengnum.Bryndís bað mig um að láta þessa ættingja sína vita að hún væri nú að fara á sundmót í febrúar og þess væri nú vænst af prinsessunni að eitthvað af þessu ættingjastóði hennar gæti nú alveg komið að horfa á .það hefði ENGINN komið síðast,mín ekki kát með það.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Fór loks í sund í dag en ég hef slegið slöku við. Fín mynd af Bryndísi.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 29.12.2008 kl. 22:01
Gleðilega jólarest til þín og fjölskyldunnar, gaman að hitta ykkur í sumar
Unnur Ósk , 29.12.2008 kl. 22:33
Hæ Heiða. Ég vildi óska ykkur gleðilegs árs. Ég er svo ódugleg að skrifa inn á og skoða blogg síður. Ákvað að kíkja á þína núna í kvöld og skrifa inn. Mér sýnist að börnin þín séu einstaklega vel heppnuð, og endilega mundu það að persónan er alltaf fyrst, á undan rauðu hári, krullum, gleraugum eða einhverfu.
Bestu kveðjur Hlíf
Hlíf (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 23:00
Góð orð hjá henni Hlíf. Hér er sko ekki farið í sund. Bið að heilsa liðinu.
Unnur Guðrún , 2.1.2009 kl. 12:03
takk fyrir góð orð í minn garð,gaman að heyra frá þér Hlíf já Þetta eru bara vænstu skinn þessi börn mín
Laugheiður Gunnarsdóttir, 2.1.2009 kl. 16:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.