gamlar myndir sem ég á
8.3.2007 | 22:13
Fór til læknis í dag með stóran lista af spurningum og fékk bara að fara í blóðprufu í staðinAnnars allt gott hér á bæ.Held upp á afmælið hans Elvars á laugardaginn og er minn maður frekar spenntur og vill hafa mikið við.Bryndís er að fara á sundmót 14apríl á Dalvík,dugleg sú litla að keppa í annað sinn áttaára ´gömul.
Fann gamla mynd af 3 af okkur systkinum, það var víst erfiðara að komast niður en upp og þessa fann ég líka af okkur öllum ég er þessi minnsta og á flestum myndum af okkur er haldið aftan í mig svo ég hlaupi ekki í burtu þau voru víst orðinn heldur þreytt á að elta mig þegar mamma og pabbi voru að reyna að ná myndum af okkur saman.Og hérna er mynd af afa Manna í Steinum eða manna á stöðinni á þessum líka fallega bíl.Og pabbi ungur að spranga í eyjum en þaðan er mamma.
Þetta eru gamlir bílar í Herjólfsdal og þessi í miðjunni heitir Gamli Haukur.
Jæja nóg af myndum í bili .
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Flottar myndir. en þessi með ykkur á þakinu. Ég þekki hana ekki og hún er svo óskýr að é gþekki bara Unni. Ert þú við hliðina? Og er svo Steini þarna? Ég er barqa ekki viss.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 8.3.2007 kl. 22:24
Flottar myndir sista og gaman að sjá þær. saknaðar knús og kossar
Unnur Guðrún , 9.3.2007 kl. 08:45
já þetta erum við Steini Unnur og þessi litla er ég,þessi skúr stóð við hliðina á Stekkjargili þegar við vorum krakkar.,
Laugheiður Gunnarsdóttir, 9.3.2007 kl. 23:32
Ég man ekkert eftir skúrnum. en ég gat þó rétt og Unnur var nú auðþekkjanleg.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 11.3.2007 kl. 12:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.